Lundamór- Verkáætlun fyrir stígakerfi


“Lundamói” er nafngift þessa verkefnis. Lundamói er “olnbogasvæði” sem er staðsett vestan hljóðmanar Reykjanesbrautar, norðan Garðabæjarvegar, austan við Lundahverfi í Garðabæ og sunnan við manngerðan leikvöll. 
Í dag voru lagðir út hælar fyrir fyrirhugaðari kurlslóð auk annara framkvæmda.



Hér að neðan er tillaga að slóðagerð.

Verkþættir


Fyrir fimmtudaginn 18.júní.

Áður en eiginleg slóðagerð fer fram skal:

– Uppkvista tré, þegar það á við
– Fellinga tré og runna (sérstaklega víðitegundir)
– Áætlanir eiga sérstaklega við um fyrirhugaðar slóðir. Þó mun verða farið yfir svæðið í heild, snyrting, uppkvistun, tvítoppaklipping o.þ.h..


Í næstu viku verður svo hafist handa við slóðina sjálfa.

Á meðfylgjandi korti má sjá fyrirhugað slóðakerfi. 
– Slóðir eru aðskildar eftir litum til að auðvelda í framkvæmd. 
– Merking 1 = Uppkvistun, snyrting, felling á nærliggjandi svæði.
– Merking 2 = Jarðvegsframkvæmdir, mest hugsað sem skófluvinna, en neðst á korti þyrfti hlass af mold eða möl.
– Merking 3 = Þörf á að stinga upp smáar plöntur og flytja um set.