Bekkir og gróðursetning


Fallegt veður í dag, smá vindur þó. Fyrir hádegi leit ég til Þóris smiðs í áhaldahúsinu. Hann reddaði mér alveg afbragðs borvél, skrúfum og öllu því til að ég gæti lagt lokahöndina á bekkina. Bekkirninr voru 5, 3 úr ösp, einn úr birki og einn greni.

Eftir hádegið fór ég upp á Rjúpnahæð (nema það heiti enn Smalaholt, veit ekki það) og gróðrsetti 3×67 birki, 67 eins árs stafafuru og 10 stk af skógarfuru. Annars setti ég líka niður 20 stk af skógarfuru í Lundamóa, auk 5 fjallaþin. 5 fjallaþinir fóru svo líka niður nærri trjásafninu í Smalaholt. = 308 plöntur. Nú er bara að vona að spáin gangi eftir… rigning.


Líkast til held ég áfram að gróðursetja stafafuru á morgun í Rjúpnahæðina.
Svona til að fara betur yfir gróðursetningarnar, þá má sjá þær hér.
Landgerð= fremur rýr mói