Það er naumast hvað tíminn líður. Í lok ársins 2022 varð ég fyrir nokkru áfalli, það var í megin atriðum líkamlegt. Það var þó bara byrjunin. Hafandi komist yfir það hef ég ýmsum að þakka. Helzt vil ég auðvitað þakka mínum betri boðara, Kollu, en hún er alltaf úráðagóð en á sama tíma uppátækjasöm. Góð blanda. Svo er það minn besti sjúkraþjálfari Héðinn Svavarsson. Hann er sjúkraþjálfari af guðs náð. Auðvitað er hann öllum líkamhnútum kunnugur, en hann leysir ekki síður andlega hnúta. Gott eintak af manni sem gaf út sitt fyrsta eintak af tónlist á Spotify á árinu, tékkið á því, HÉÐINN SVAVARSSON.
Guðrún Hulda, yndislegi ritstjóri Bændablaðsins, bað mig hvort ég gæti teiknað myndir í blaðið. Það þótti mér vænt um og auðvitað seig maður, JÁ. ÞEtta hefur þó tekið meiri tíma en ég reiknaði með, en þetta er samt ofboðslega gaman. Ég vona líka að þetta setji svip á þær greinar sem myndin fær að skreyta. Hingað til eru bæði teiknari og blaðamaður glaðir með afraksturinn. Megi það lengi vera. á þessu ári voru nokkrar myndir teiknaðar og eru þær hér. Af gefnu tilefni má taka það fram, að myndirnar eru varðar höfundarétti og skal tala við ritstjóra Bændablaðsis til að hefja slíkt samtal.
Ef ég fjalla um vinnuna hér, þá næ ég seint að klára. Vil því bara benda á Rammaskýrsluna 2023, sem er aðgengileg á skogarbondi.is.