| Dagurinn í dag var ekki við eina fjölina felldur, því lítið var fellt af trjám þennan dag, bara nokkur. Ástæðan er sú að afæmlissögin greindist stórskemmd. Fyrst byrjaði Sævar að reyna tjónka hana til í morgun, en það gekk ansi brösulega. Þá benti hann mér á að fara til Hjartar í Garðheimum og hann sá hvað var að. Stipillinn var stórbrotinn. Hjörtur sagðist aldrei hafa séð eins skemmdan stimpil fyrr, hann hefur oft séð þá sprungna og þar með ónýta, en aldrei þannig að heilt stykki vantaði. Sögin var sem sagt kapútt. MYNDIR Á litlu myndinni má sjá hvar stórt stykki vantar í stimpilinn. Á stóru myndinni er Sævar að gera sitt besta til að stilla ganginn í henni ÁÐUR en bilunin kunngerðist. |
