Haustgróðursetningu lokið í Sauðhaga 2


Þann 11. október hófst Hlynur handa við Gróðursetningu á jörðinni Sauðhaga 2 á Völlum (næstum Skriðdal) á Fljótsdalshéraði.  Veðrið var með eindæmum gott, hlýtt og kjurrt, allan tíman svo að segja. Gróðursetningin stóð yfir í 8 daga samfellt, frá sunnudegi til sunnudags. 
Gróðursetningin var af beiðni/boði Héraðs- og Austurlandsskóga og þar sem ég var bíllaus bauðst mér bíll þeirra, oft nefndur „Skrímsli“, en það er þó bara létt breyttur Hilux. Þakka ég þeim fyrir afnotin. 


Niður í jörð fóru samtals: 12.942 plöntur
Lerki, Imatra (67 gata bakki) = 7638
Sitkagreni, Þjórsárdalur (24) = 2640
Alaskaösp, Sæland (24) = 840
Alaskaösp, Keisari (24) = 768
Reyniviður, Hlíðarbraut (24) = 648
Hengibirki, Hausjarvi (24) = 408

Lærdómur:
Mikill munur er að gróðursetja eftir bakkastærðum. Bakkastærð 67 er svo langt um mun auðveldari en stærð 24 og til að gefa mynd af því tók það mig um 3 klukkustundir að gróðursetja úr 24 gata bakka en sama magn úr 67 gata bakka tók það mig einungis tæpa 1 klukkustund.


Hér fyrir neðan eru svipmyndir af svæðinu. Á neðstu myndinni eru allir bakkarnir uppraðaðir, frá degi 1 (lengst til vinstri) til dags 8 (lengst til hægri). Allra neðst er svo PDF skýrsla af verkinu.
sauðhagi_haust_2015-gróðursetning_hgs_19102015hgs.pdf
File Size: 2049 kb
File Type: pdf
Download File