Gróðursetningu á Geirólfsstöðum lokið


Geirólfsstaðir er jörð í Skriðdal, Fljótsdalshéraði. Neðst á jörðinni er þegar búið að gróðursetja töluvert af aðallega lerki en frá vori 2013 hefur verið lögð áhersla á gróðursetingu efst í girðingunni. Hlynur, ásamt öðrum, hefur haft þá gróðursetningu á sínum hreðjum. 
Í fyrrahaust höfðu tæpir 10 ha verið jarðunnir á jörðinni. Fyrirhugað var að fylla hana þetta vorið.
Gróðursetning hófst 2.júní og lauk 9. júní (2 frídagar) og skiptust plönturnar nokkuð jafnt á milli  Hlyns og Möggu, eða 21.419 plöntur.


Stafafura  (kvæmi: Watson lake) = 7.973 plöntur (119 bakkar-67gata)
Lerki (Imatra): 4.958 plöntur (74 bakkar-67 gata)
Sitkagreni (þjórsárd): 4.000 plöntur (100 bakkar-40 gata)
Alaskaösp (Hallormur og smá Keisari og Sæland): 2.496 plöntur (104 kassar 24 gata)
Hengibirki (Husarvii) : 1.488 plöntur (62 bakkar- 24 gata)
Reyniviður : 504 plöntur (21 bakki- 24 gata)


Aðstæður blautar, vægast sagt. Ekki var hægt að nota slóða fyrir bleytu, hversu fáránlega sem það hljómar, enda festum við okkur þegar þær voru notaðar. Frostið var að fara úr móunum og stóð mikið vatn uppi í flekkjunum.  Þetta slapp þó allt því landið þornaði hægt og hljótt og var orðið viðunandi blaut þegar gróðursetningu lauk. Væntanlega mun þorna meir og þá verður landraki alveg kjörinn.
 
Reynslan af gróðursetningunni á Geirólfsstöðum og Ási finnst okkur langsamlega best og þægilegsat að gróðrusetja frosið lerki, enda plönturnar litlar og kassar þægilegir í meðhöndlun. Verst þótti okkur að eiga við 24 gata plöntur (AÖ, HB, IR) úr bökkum og erum við ákaflega lítið spennt fyrir að halda áfram með þær, enda þó laun fyrir hverja plöntu sé hærra þá erum við samt töluvert lengur verið að koma þeim niður en því nemur. Jarðvinnsla hægir líka töluvert á gróðursetningu sérstaklega þegar jarðvinnslan verður að „spaketíi“, úff.  Mun betra er að vinna á mel og stýra millibilinu með hælum, líkt og við gerðum á Ási.
Efsta myndin er af Möggu og Hlyni
næstu tvær eru frá fyrsta degi og þeim blautasta þegar bíllinn sat fastur í legðju. Þegar Bóbó á Mýrum dróg okkur upp… þriðja árið í röð.