| Jörðin Ás er í Fellum, Fljótsdalshéraði. Þar er mikil hefð fyrir skógrækt og eru elstu gróðursetningar þar um 30 ára gamlar lerkigróðursetningar. Jafnt og þétt hefur verið unnið að skógrækt á jörðinni. Þetta árið var unnið að því að fylla allt innan núverandi girðingar(gróðursetningarhólfs), þ.e.a.s. það sem ekki er skilgreint sem mýrar og klettar. Sem sagt, svo lengi sem friðað land er ekki stækkað þá er landið full gróðursett, líklega 95% lerki. Í ár voru 30.150 frostnum lerkiplöntum (225 kassar) plantað á tímabilun 22. maí – 1.júní . – Hlynur vann alla daga, engin pása. = 21.172 plöntur (158 kassar) 70% – Magga kom til leiks 29.maí og var með uppfrá því. = 6.700 plöntur (50 kassar) 22% – Sveinbjörg vann tvo daga og þá rigndi mjög. = 2.010 plöntur (15 kassar) 7% – Einar Jóhann var með part úr degi (24.maí) = 268 plöntur (2 kassar) 1% | Frosið lerki lætur lítið yfir sér og er nánast ósýnilegt þegar komið er í jörðu. Sjá ofan á geispunni. |
Ás landið eru þurrir melásar og mýrar á milli.
Stundum getur það verið mjög stórgrýtt, en þarna mun lerkið þrýfast.
Hrjóstugir melar á Ási, hentugt fyrir lerki.
Þarna hleypur Dísa um eldri skóg á Ási
