| Umpottun í aðstöðu skógræktarfélags Garðabæjar Umpottað var í 2l potta, alls 211 stykki (sjá karmana hér til hliðar) Fjallaþinur = 106 Sitkagreni = 68 Rauðgreni = 15 Skógarfura = 13 Lerki = 9 Aðferð: Blandaðri gróðurmold úr Garðheimum var blandað svona: 1 fata sigtuð mold 1 lúka (skeið) kjötmjöl 2 lúkur vikur Mynd 1: Neðst í pottinn var molta og restin var fyllt með viðeigandi plöntu og moldarblöndunni. Svo var plöntunni svo gott sem drekt og þannig fór potturinn út á plan. Mynd 2: Aðstaðan, vökvunarkörin og verkstæðið Mynd 3: Afrakstuinn á plani. |
Sandahlíð, stígagerð
Unnið hefur verið við stígagerð í Sandahlíðinni. Töluvert er af alls konar grjóti, vatsrásum (vorlækir) og hliðarhalla.
Hér eru svipmyndir af barningi við það.
Fyrstu tvær (hægri og vinstri) eru fyrir og eftir myndir. Þarna var þykk lípína fyrir, svo hliðarhalli og mikið grjót.
Neðri myndirnar eru af röri sem var sett í gamla vatsrás. Þara er ekkert vatn á ferð eins og er, en mögulega eru vorlækir þarna svo allur er varinn góður. Þetta rör fann ég í fjöru skammt frá Akranesi og vildi nota það, enda allt í besta lagi og fullkomin lengd og sverleiki.
